"Ævintýrið byrjaði með því að ég saknaði þess að fá góðan borgara"

Framleiðsla mín er vegan án allra aukefna og viðbætts sykurs. Ástríða mín er að koma með bragðgóðan og hollan valkost í veganúrval íslensks matvælamarkaðs. Einnig hafði ég í huga að varan væri væn þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í að velja meira plöntumiðað mataræði og minnka kjötneyslu eða vilja fá meiri tilbreytingu í fæðuvali.