Uppskrift
Fylltar paprikur með Hakki
Litríkar ofnbakaðar paprikur fylltar með Hakki, hrísgrjónum, svörtum baunum og maís, með bráðnum osti yfir. Saðsamur fjölskyldumatur sem er líka flottur á borð þegar gestir koma.
Gert úr vörum Ellu Stínu
Hráefni
- 4 stórar paprikur, rauðar eða gular
- 1 pakki Hakk frá Ellu Stínu (380 g)
- 1 laukur, smátt saxaður
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 dós svartar baunir (400 g), skolaðar
- 1 dl maískorn
- 2 dl soðin hrísgrjón
- 1 dós saxaðir tómatar (400 g)
- 2 tsk tacokrydd
- 1½ dl rifinn plöntuostur
- Ólífuolía, salt og pipar
- Fersk steinselja eða kóríander
Aðferð
- Hitið ofninn í 200 °C. Skerið paprikurnar í tvennt eftir endilöngu og fjarlægið fræin. Raðið þeim í eldfast mót, penslið með olíu og bakið í 10 mínútur.
- Steikið laukinn í olíu í 4–5 mínútur. Bætið hvítlauknum og Hakkinu við og steikið áfram í 5 mínútur.
- Hrærið tómötunum, baununum, maísnum, hrísgrjónunum og tacokryddinu saman við og látið malla í 5 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
- Fyllið paprikurnar vel og stráið ostinum yfir.
- Bakið í 15–20 mínútur þar til osturinn er bráðinn og paprikurnar mjúkar. Toppið með ferskum kryddjurtum.
Ráð: Fyllinguna má gera daginn áður. Gott með fersku salati og sýrðum hafrarjóma.



