← Allar uppskriftir

Uppskrift

Stökkt tófú með hrásalati og hnetusósu

Stökkt tófú hjúpað léttu kryddi, ferskt hrásalat með lime og kóríander og silkimjúk hnetusmjörssósa. Uppskrift frá Ellu Stínu.

35 mín.Fyrir 4

Gert úr vörum Ellu Stínu

Hráefni

Stökkt tófú

  • 1 krukka Tófú – lífrænt frá Ellu Stínu
  • 2 msk maísmjöl
  • 1–2 msk olía, og meira til steikingar
  • 1 msk tamarisósa
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk laukduft
  • Salt og pipar eftir smekk

Ferskt hrásalat með kóríander

  • 300 g rauðkál
  • 300 g hvítkál
  • 200 g gulrætur
  • 1 dl ferskt kóríander
  • Safi úr 2 lime
  • 1½ dl plöntumajónes
  • 1,2 dl hrein ósæt plöntujógúrt
  • Salt og pipar
  • ½–1 dl sesamfræ

Hnetusmjörssósa

  • 3 msk hnetusmjör
  • 2–3 tsk tamarisósa
  • 1 msk lime-safi
  • 1–2 tsk hlynsíróp
  • 1 tsk rifið engifer
  • 2–4 msk heitt vatn
  • Smá salt

Aðferð

  1. Hellið vatninu af tófúinu og skerið það í bita. Ella sker það langsum í fjórar sneiðar. Vefjið bitunum inn í hreint viskastykki í 10 mínútur svo vökvinn fari úr.
  2. Hrærið olíu og tamarisósu saman í skál, leggið tófúbitana í blönduna og leyfið þeim að marinerast í smá stund.
  3. Hrásalat: Skerið rauðkál og hvítkál í þunna strimla og rífið gulræturnar. Saxið kóríanderið smátt. Hrærið plöntumajónes, jógúrt, lime-safa, salt og pipar saman í annarri skál, blandið öllu saman og stráið sesamfræjum yfir.
  4. Blandið maísmjöli, hvítlauksdufti, laukdufti, salti og pipar saman í skál. Veltið tófúbitunum upp úr blöndunni svo þeir hjúpist vel.
  5. Steikið tófúið á pönnu upp úr olíu við meðalhita. Snúið bitunum svo þeir verði gullnir og stökkir á öllum hliðum. Einnig má baka þá í ofni á blæstri við 180 °C í 25–30 mínútur.
  6. Hnetusmjörssósa: Hrærið hnetusmjöri, tamarisósu, lime-safa, hlynsírópi, engifer og salti vel saman. Bætið heitu vatni út í smátt og smátt þar til sósan er silkimjúk.
  7. Setjið tófúið á disk, hrásalatið ofan á og skeið af hnetusmjörssósu yfir.

Ráð: Þrrið tófúið vel, því þurrara sem það er því stökkara verður það. Hrásalatið geymist í kæli í 1–2 daga og er líka gott í vefjur.

Ein einföld uppskrift á viku

Fljótlegur kvöldmatur í pósthólfið einu sinni í viku, og fréttir af nýjum vörum. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Vörurnar í réttinn

Hér sérðu hvar hver vara fæst. Smelltu á Krónuna til að kaupa vöruna í netverslun Krónunnar.