Uppskrift
Sveppa Wellington fyrir matarboðið
Glæsilegur matseðill fyrir matarboðið, jólin eða sunnudagsmatinn: Sveppa Wellington beint úr ofninum með sætkartöflumús, strengjabaunum og villisveppasósu, og döðlukaka í eftirrétt. Lítil fyrirhöfn, mikil veisla.
Gert úr vörum Ellu Stínu
Hráefni
Aðalréttur
- 1 Sveppa Wellington frá Ellu Stínu (795 g), eða 2 fyrir stærri hóp
- 1 dós Villisveppasósa frá Ellu Stínu
Sætkartöflumús
- 1 kg sætar kartöflur
- 2 msk ólífuolía eða smjörlíki
- Salt, pipar og smá múskat
Meðlæti
- 300 g strengjabaunir eða aspas
- Ólífuolía, salt og sítróna
Eftirréttur
- Döðlukaka með karamellusósu frá Ellu Stínu
- Fersk jarðarber og ís
Aðferð
- Bakið Sveppa Wellington eftir leiðbeiningum á umbúðunum þar til hún er gullinbrún og stökk.
- Afhýðið sætu kartöflurnar, skerið í bita og sjóðið í söltu vatni í um 15 mínútur þar til þær eru mjúkar. Hellið vatninu af og stappið með olíu, salti, pipar og smá múskati.
- Snyrtið strengjabaunirnar og sjóðið í 3 mínútur. Veltið þeim upp úr olíu á heitri pönnu og kreistið sítrónu yfir.
- Hitið Villisveppasósuna í potti á vægum hita og hrærið í.
- Látið Wellington standa í 5 mínútur, skerið í þykkar sneiðar með beittum hníf og berið fram með músinni, baununum og sósunni.
- Hitið döðlukökuna eftir leiðbeiningum á umbúðunum og berið fram með jarðarberjum og ís.
Ráð: Músina og baunirnar má undirbúa áður en gestirnir koma. Þá er bara að skella Wellington í ofninn og hita sósuna.
Ein einföld uppskrift á viku
Fljótlegur kvöldmatur í pósthólfið einu sinni í viku, og fréttir af nýjum vörum. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.





