Recipe
Stökkt tófú með hrásalati og hnetusósu
Stökkt tófú hjúpað léttu kryddi, ferskt hrásalat með lime og kóríander og silkimjúk hnetusmjörssósa. Uppskrift frá Ellu Stínu.
Made with Ella Stína
Hráefni
Stökkt tófú
- 1 krukka Tófú – lífrænt frá Ellu Stínu
- 2 msk maísmjöl
- 1–2 msk olía, og meira til steikingar
- 1 msk tamarisósa
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1 tsk laukduft
- Salt og pipar eftir smekk
Ferskt hrásalat með kóríander
- 300 g rauðkál
- 300 g hvítkál
- 200 g gulrætur
- 1 dl ferskt kóríander
- Safi úr 2 lime
- 1½ dl plöntumajónes
- 1,2 dl hrein ósæt plöntujógúrt
- Salt og pipar
- ½–1 dl sesamfræ
Hnetusmjörssósa
- 3 msk hnetusmjör
- 2–3 tsk tamarisósa
- 1 msk lime-safi
- 1–2 tsk hlynsíróp
- 1 tsk rifið engifer
- 2–4 msk heitt vatn
- Smá salt
Aðferð
- Hellið vatninu af tófúinu og skerið það í bita. Ella sker það langsum í fjórar sneiðar. Vefjið bitunum inn í hreint viskastykki í 10 mínútur svo vökvinn fari úr.
- Hrærið olíu og tamarisósu saman í skál, leggið tófúbitana í blönduna og leyfið þeim að marinerast í smá stund.
- Hrásalat: Skerið rauðkál og hvítkál í þunna strimla og rífið gulræturnar. Saxið kóríanderið smátt. Hrærið plöntumajónes, jógúrt, lime-safa, salt og pipar saman í annarri skál, blandið öllu saman og stráið sesamfræjum yfir.
- Blandið maísmjöli, hvítlauksdufti, laukdufti, salti og pipar saman í skál. Veltið tófúbitunum upp úr blöndunni svo þeir hjúpist vel.
- Steikið tófúið á pönnu upp úr olíu við meðalhita. Snúið bitunum svo þeir verði gullnir og stökkir á öllum hliðum. Einnig má baka þá í ofni á blæstri við 180 °C í 25–30 mínútur.
- Hnetusmjörssósa: Hrærið hnetusmjöri, tamarisósu, lime-safa, hlynsírópi, engifer og salti vel saman. Bætið heitu vatni út í smátt og smátt þar til sósan er silkimjúk.
- Setjið tófúið á disk, hrásalatið ofan á og skeið af hnetusmjörssósu yfir.
Ráð: Þrrið tófúið vel, því þurrara sem það er því stökkara verður það. Hrásalatið geymist í kæli í 1–2 daga og er líka gott í vefjur.
One easy recipe a week
A quick dinner idea in your inbox once a week, plus news about new products. Unsubscribe at any time.



