← All recipes

Recipe

Shawarma-píta með Kjúllabitum

Kjúllabitar í ilmandi shawarma-kryddlegi, steiktir þar til þeir verða stökkir á köntunum og settir í heitt Pítubrauð með hvítlaukssósu og fersku grænmeti.

25 minServes 4

Hráefni

Shawarma-kjúllabitar

  • 2 pakkar Kjúllabitar frá Ellu Stínu (2 × 140 g)
  • 2 msk ólífuolía
  • 1 msk tómatpúrra
  • 2 msk hrein plöntujógúrt
  • Safi úr ½ sítrónu
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 tsk kúmen, 1 tsk reykt paprika, ½ tsk kóríanderduft og ½ tsk túrmerik
  • Salt, pipar og smá cayennepipar

Hvítlaukssósa

  • 150 ml Pítusósa frá Ellu Stínu
  • ½ agúrka, rifin og safinn kreistur úr
  • 1 hvítlauksrif, pressað
  • Ferskt dill eða mynta, saxað

Í pítuna

  • 1 pakki Pítubrauð frá Ellu Stínu (4 stk.)
  • Kál, tómatar og rauðlaukur
  • Að vild: súrar gúrkur

Aðferð

  1. Hrærið saman olíu, tómatpúrru, jógúrt, sítrónusafa, hvítlauk og kryddi. Veltið Kjúllabitunum upp úr kryddleginum.
  2. Hrærið Pítusósu, rifinni agúrku, hvítlauk og kryddjurtum saman.
  3. Hitið pönnu á meðalháum hita og steikið Kjúllabitana í 6–8 mínútur þar til kryddlögurinn hefur brúnast og bitarnir eru stökkir á köntunum.
  4. Hitið Pítubrauðin í brauðrist eða ofni í 2–3 mínútur og opnið þau.
  5. Fyllið píturnar með káli, shawarma-bitum, tómötum og rauðlauk og setjið vel af hvítlaukssósunni yfir.

Ráð: Viljið þið frekar vefjur? Notið stórar tortillur, rúllið þeim þétt utan um fyllinguna og ristið á þurri pönnu í 1 mínútu á hvorri hlið.

One easy recipe a week

A quick dinner idea in your inbox once a week, plus news about new products. Unsubscribe at any time.