Uppskrift
Sætkartöflur og hakk
Ofnbakaðar sætar kartöflur fylltar með krydduðu Hakki, fersku salsa og guacamole. Litríkur og saðsamur kvöldmatur þar sem ofninn sér um mestu vinnuna.
Gert úr vörum Ellu Stínu
Hráefni
Kartöflur og hakk
- 4 meðalstórar sætar kartöflur
- 1 pakki Hakk frá Ellu Stínu (380 g)
- 1 laukur, smátt saxaður
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 dós saxaðir tómatar (400 g)
- 2 tsk tacokrydd
- Ólífuolía, salt og pipar
Salsa og toppur
- 2 þroskuð avókadó og safi úr 1 lime
- 1 box kirsuberjatómatar og ½ rauðlaukur
- 1 jalapeño í sneiðum
- Sýrður hafrarjómi eða plöntujógúrt
- Ferskt kóríander
Aðferð
- Hitið ofninn í 200 °C. Stingið nokkrum sinnum í kartöflurnar með gaffli, penslið með olíu og bakið í 45–50 mínútur þar til þær eru mjúkar í gegn.
- Steikið laukinn í olíu á pönnu í 4–5 mínútur. Bætið hvítlauknum og Hakkinu við og steikið áfram í 5 mínútur.
- Hrærið tómötunum og tacokryddinu saman við og látið malla í 10 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
- Stappið avókadóið með lime-safa og smá salti. Skerið tómatana og rauðlaukinn smátt og blandið saman í salsa.
- Skerið kartöflurnar eftir endilöngu, ýtið aðeins í þær og fyllið með Hakkinu. Toppið með guacamole, salsa, sýrðum hafrarjóma, jalapeño og kóríander.
Ráð: Ef tíminn er naumur má hita kartöflurnar í örbylgjuofni í 8–10 mínútur og klára þær í ofninum í 15 mínútur.



