Uppskrift
Kjúklingabaunaborgari
Grillborgari með Kjúklingabaunabuffi, bráðnum plöntuosti og Hamborgarsósu. Tilbúinn á korteri, á grillinu eða á pönnunni.
Gert úr vörum Ellu Stínu
Hráefni
- 1 pakki Kjúklingabaunabuff frá Ellu Stínu (2 stk.)
- 2 hamborgarabrauð
- Hamborgarsósa frá Ellu Stínu
- 2 sneiðar plöntuostur
- Kál, tómatur, rauðlaukur og súrar gúrkur
- Olía til steikingar
Aðferð
- Steikið buffin í smá olíu á meðalhita í 3–4 mínútur á hvorri hlið, eða grillið þau á heitu grilli.
- Leggið ostsneið á hvert buff síðustu mínútuna og setjið lok yfir svo osturinn bráðni.
- Ristið brauðin létt á pönnunni eða grillinu.
- Smyrjið Hamborgarsósu á báða helminga og raðið káli, buffi, tómat, rauðlauk og gúrkum á milli.
Ráð: Berið fram með kartöfluflögum eða frönskum og meiri Hamborgarsósu til að dýfa í.




