Uppskrift
Kebab í pítu
Föstudagspítan klár á korteri. Stökkt Kjúllakebab í heitu Pítubrauði með fersku grænmeti og vel af Pítusósu.
Gert úr vörum Ellu Stínu
Hráefni
- 2 pakkar Kjúllakebab frá Ellu Stínu (2 × 140 g)
- 1 pakki Pítubrauð frá Ellu Stínu (4 stk.)
- Pítusósa frá Ellu Stínu
- Kál, til dæmis jöklasalat
- 2 tómatar og ½ agúrka
- ½ rauðlaukur í þunnum sneiðum
- Olía til steikingar
Aðferð
- Hitið olíu á pönnu og steikið Kjúllakebabið á meðalháum hita í 5–6 mínútur þar til það er gullið og stökkt á köntunum.
- Hitið Pítubrauðin í brauðrist eða ofni í 2–3 mínútur og opnið þau.
- Skerið tómatana og agúrkuna í bita.
- Fyllið píturnar með káli, kebabi, tómötum, agúrku og rauðlauk og setjið vel af Pítusósu yfir.
Ráð: Prófið Kokteilsósu eða Hamborgarsósu frá Ellu Stínu í stað Pítusósunnar.





