← All recipes

Recipe

Snitsel með sætri chilisósu og stökku hrásalati

Stökkt Snitsel með sesamfræjum, sætri og sterkri sósu og litríku hrásalati með lime. Gullið að utan, djúsí að innan og tilbúið á 25 mínútum.

25 minServes 4

Made with Ella Stína

Hráefni

Snitsel

  • 2 pakkar Snitsel frá Ellu Stínu (4 stk.)
  • 1 msk ristuð sesamfræ
  • Olía til steikingar
  • Sítrónubátar

Sæt og sterk sósa

  • 3 msk sojasósa
  • 3 msk tómatsósa
  • 2 msk sæt chilisósa
  • 1 msk sriracha
  • 1 msk hlynsíróp
  • 1 msk sesamolía
  • 1 tsk rifinn hvítlaukur og 1 tsk rifið engifer

Stökkt hrásalat

  • ¼ rauðkálshaus, fínt skorinn
  • 2 gulrætur, skornar í strimla
  • 2 vorlaukar, smátt skornir
  • Safi úr 1 lime, 1 tsk sesamolía og smá salt

Aðferð

  1. Setjið allt í sósuna í lítinn pott og látið malla í 2–3 mínútur þar til hún þykknar aðeins. Takið af hitanum.
  2. Blandið rauðkáli, gulrótum og vorlauk saman í skál. Kreistið lime-safann yfir, bætið sesamolíu og salti við og hrærið.
  3. Eldið Snitselið eftir leiðbeiningum á pakkanum, á pönnu í smá olíu eða í ofni, þar til það er gullið og stökkt.
  4. Penslið Snitselið með smá af sósunni og stráið sesamfræjum yfir.
  5. Berið fram með hrásalatinu, sítrónubátum og restinni af sósunni í skál.

Ráð: Sósan geymist í nokkra daga í kæli og er líka góð með Kjúllabitum. Fyrir krakkana er gott að hafa sósuna til hliðar. Ofnbakaðir kartöflubitar passa vel með.

One easy recipe a week

A quick dinner idea in your inbox once a week, plus news about new products. Unsubscribe at any time.

In this recipe

Where each product is sold. Tap Krónan to buy it in Krónan's online store.